La Dérive Truffle - Arte
La Dérive Truffle – Arte
Tíska og innanhússhönnun hafa alltaf haft mikil innbyrðis áhrif hvort á annað. Le Couturier veggfóðurslínan leitar eftir innblæstri í heim hátískufatnaðar – heim sem leggur áherslu á handverk þar sem hver flík ber vott um yfirburða listfengi og vandaða útfærslu. Sú nálgun er sameinuð í hágæða textílefnum í hátískuveggfóðri Le Couturier línunnar.
La Dérive er útsaumað veggfóður með mjúkri áferð sem minnir á rúskinn. Mynstrið er fallega geómetrískt. La dérive er franska, samheiti yfir sjálfsprottið innra ferðalag þar sem ferðalangurinn skilur við sitt vanabundna líf um hríð en velur þess í stað að láta landslag og arkitektúr vera sinn leiðarvísi.
La Dérive veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má þrýsta á eða strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi strax í upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
38.146 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun































Oriental Garden - Boråstapeter
Alma Mocha - Arte
Blossom Mini - Boråstapeter
Idun Mineral Grey - Sandberg
Hicks' Grand - Cole & Son
Daphne - Boråstapeter
Lin Murano - Arte
Melville, Soot & Snow - Cole & Son
Capas 34301 - Arte
Nelson Soft Eucalyptus - Arte
Tulle Ginger - Arte
Circus, Rainbow - Rebel Walls
Butterflies, Sandstone - Sandberg
Woods & Pears - Cole & Son
Ardmore Border, Soot & Snow - Cole & Son
Nongo Blue Ash - Arte
Malabar - Cole & Son
Turtledove Barn Indigo Blue - Sandberg
Linnea Misty Blue - Sandberg
Siv Misty Blue - Sandberg
Audrey, Blue - Sandberg
Rambling Rose Leafy Arbour/Pearwood - Morris & Co
Mimi Sandstone - Sandberg
Temper Navy Blue - Arte
Granville Antique Mauve - Arte
Tana Pillow - Arte
Betty, Yellow - Sandberg
Pentagono Turquoise - Arte
Arne Jacobsen Tassel - Boråstapeter