Golden Lily, Indigo - Morris & Co
Golden Lily, Indigo – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Samanofnum liljustilkum og gripþráðum er raðað á sterka skálínu í veggfóðrinu Golden Lily. Mynstrið er hannað af John Henry Dearle árið 1899, en Dearle var helsti samstarfsmaður William Morris. Dramatískt og glæsilegt veggfóður.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
41.149 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Marigold, Artichoke - Morris & Co
Lin Cimento - Arte
Blöð fyrir glersköfu - Allway, lítil 10 stk
Rambling Rose Emery Blue/Spring Thicket - Morris & Co
Lin Normandie Zen - Arte
Kajsa, Sand - Sandberg
The Beauty of Life Indigo - Morris & Co
Skafa - Embo, til niðurrifs á veggfóðri 575mm
Vírbursti - Purdy
Viðarmynsturtól - Friess, 100mm
Lin Gris Brouillard - Arte