Gilded Heritage Gold Rush - Arte
Gilded Heritage Gold Rush – Arte
Veggklæðningarnar í Boutique-línunni endurspegla japanskan glæsileika frá því um miðja síðustu öld. Eftir síðari heimsstyrjöldina upplifði Japan gífurlegan efnahagsvöxt sem leiddi til umbreytinga sem einkenndust af bjartsýni og framsækinni hugsun. Í innanhússhönnun birtist þessi vonarstemning í nýjum, að mestu glansandi efnum og glæsilegum mynstrum – sem gnægð er af í Boutique veggfóðurslínunni.
Gilded Heritage: Þessi glæsilega hönnun er innblásin af útliti blaðgulls og vísar til gljáandi efnanna sem voru afskaplega vinsæl í Japan eftir stríð. Tilvísunin er einnig til arfleifðar Japans með sína ríku og forvitnilegu sögu.
Gilded Heritage veggfóðrið er gert úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
13.721 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun
