Fruit, Slate/Thyme - Morris & Co
Fruit, Slate/Thyme – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Mynstrið Fruit var fyrst framleitt sem veggfóður árið 1864 og er ein elsta hönnun Morris. Það sýnir gnægð af þroskuðum granateplum hangandi á laufguðum greinum. Veggfóðrið er yfirborðsprentað þannig að finna má fyrir ójöfnunum í þrykkinu við snertingu. Það er fáanlegt í nokkrum fallegum litasamsetningum. Blárs bakgrunnurinn á þessu veggfóðri, Fruit Slate/Thyme, er með dásamlegan mjálmgljáa.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.892 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Arrow Winter Gold - Arte
Sabal Silver Forest - Arte
Polka Stripe - Boråstapeter
Arne Jacobsen Trapez - Boråstapeter
Idun Misty Blue - Sandberg
Parrot - Boråstapeter
Tree Canopy - Boråstapeter
My Feldt Skogsviol - Boråstapeter
Calm White - Boråstapeter
Polka Stripe - Boråstapeter
SX138 gólflisti
Palm Spring, Pearl - Rebel Walls
Västigårn - Boråstaper
Strawberry Thief, Indigo/Mineral - Morris & Co