Fringe Blue Stone - Arte
Fringe Blue Stone – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Fringe veggfóðrið er einmitt hannað sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Fringe er gert úr tvöföldum jútavef. Jútaræmurnar eru litaðar fyrst og síðan ofnar saman. Efnið er svo límt ofan á glansandi málmpappír eða mattan bakgrunn og skorið í strimla aftur. Að lokum eru strimlarnir ofnir saman aftur.
Fringe er handgert, náttúrulegt veggfóður. Það er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
13.179 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun











Senzo Spot, Soot & Snow - Cole & Son
Woods - Cole & Son
Marion, Gray - Sandberg
Northern Forest - Boråstapeter
Light Linen - Boråstapeter
Sara Indigo Blue - Sandberg
Woods, Metallic Gold on Duck Egg - Cole & Son
Eugen Oat - Sandberg
Twill Chroma - Arte
Casalian Dove - Arte
Tasar Desert Sun - Arte
Annabelle Terracotta - Sandberg
Leon, Misty Blue - Sandberg
Venice - Boråstapeter