fbpx

Drift Taupe - Arte

11.640 kr. lengdarmetraverð

Drift Taupe – Arte

Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Drift línan er einmitt gerð sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.

Drift veggfóðrið eru úr náttúrulegum sísaltrefjum sem eru afar fínt ofnar saman í vef. Þá er vefurinn lagður í fellingar með höndunum. Að lokum er málmblek borið efst á fellingarnar. Þessi tækni skilar lifandi og algerlega einstakri veggklæðningu, með miklum karakter.

Drift er handgert, náttúrulegt veggfóður úr sísaltrefjum. Það er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúruefnum

11.640 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 91,44 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping