Daisy & Oak, Sage/Forest - Morris & Co
Daisy & Oak, Sage/Forest – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Daisy & Oak veggfóðrið sýnir nokkur vinsæl Morris mótíf með eikarhnetum sem mynda áberandi útlínur á móti vöndum af fíngerðum freyjubrám og túlípönum. Mynstrið er afar skrautlegt og ákveðið með óvenjulegri uppsetningu og einstakri endurtekningu – dæmigert fyrir hönnun Morris.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
43.627 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Swanlake - Boråstapeter
Pandan Beach - Arte
My Feldt Skogsviol - Boråstapeter
Paneling - Boråstapeter
Topiary, Olive Green- Cole & Son
My Secret Garden - Boråstapeter
Tela Ivory - Arte
Granville Antique Mauve - Arte
CX111 loftalisti
Maidenhair, China Blue - Cole & Son
Misty Forest - Boråstapeter
Titania, Metallic Gold on Cream - Cole & Son
Semiramis - Boråstapeter
Cuadro Ochre - Arte
Vintage Palms - Boråstapeter
Folklore - Boråstapeter
Motas Stone - Arte
Kefli - Friess, Malerstreif 15cm
Oak & Blossom, Thyme/Woad - Morris & Co