Curve Beach - Arte
Curve Beach – Arte
Curve er ofið textílefni með vott af gamaldags yfirbragði en þannig efni voru einmitt afar vinsæl um miðbik 20. aldar í textíliðnaði og hjá frægum tískuhúsum, t.d. Chanel. Slík vinnsla á efnum er yfirleitt nefnd „bouclé“ sem þýðir eiginlega „hrokkinn“, en það eins og misþykkt, krullað garnið standi svolítið upp úr efninu hér og þar og myndar notalega, grófofna áferð. Við sjáum svona vefnað mikið í bólsturefnum sófa og hægindastóla í dag. Curve mynstrið sjálft er byggt upp af mjúkum hálfhringum sem eru umluktir ferningum. Þetta veggfóður hefur töluvert verið notað á rúmgafla. Litur: Drappaður.
Curve textílefnið er lagt ofan á misþykkan svamp og gefur því skemmtileg þrívíddaráhrif. Í leiðinni nást jákvæð hljóðvistaráhrif. Veggfóðrið er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið beint á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. ATH. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
44.814 kr. lengdarmetraverð





























Temper Antique White - Arte
Lin Straw - Arte
Pine Tree - Boråstapeter
Kefli - Friess, Profingrey 25cm-16mm
Syren - Boråstapeter
Secret Garden, Sage on Chalk - Cole & Son
Canvas Christal - Boråstapeter
Nocturne - Boråstapeter
Cow Parsley, Petrol & Ink - Cole & Son
Pixie Shore, Night - Rebel Walls
Lana Freckle - Arte
Year Of The Tiger Graphite - Rebel Walls
Evelina Sage Green - Sandberg
Shimmer Ash - Arte
Emrik, Oat - Sandberg
Temper Canary - Arte
Ben, Garden Green - Sandberg
Nelson Ash Purple - Arte