Couture Carousel Windows, Blush Pearl - Cole & Son
Couture Carousel Windows, Blush Pearl – Cole & Son
Í tilefni af 175 ára afmæli Harrods hefur hönnunarhúsið Cole & Son, í samstarfi við innanhússhönnuði Harrods, skapað Couture Carousel; veggfóður sem heiðrar ríka arfleifð Harrods og um leið heim hátískunnar.
Couture Carousel línan er handteiknuð og handmáluð í höfuðstöðvum Cole & Son í Chelsea. Hver og ein af 16 hönnunarmyndum tákna tímabil í hátísku; allt frá sjötta og sjöunda áratugnum, sem einkenndust af glæsilegri hönnun, til djarfra klæða níunda og tíunda áratugarins, þegar tískan varð tilraunakenndari og framsæknari. Innblásturinn að þessu einstaka veggfóðursmynstri eru gamaldags forsíður Harrods tímarita, sem sýna stórkostlega fallegar tískumyndskreytingar, bæði í skærum og dempuðum vatnslitum. Þannig sjáum við sérsniðnar hönnunarflíkur sem segja frá ferðalagi í gegnum hástískustrauma síðustu áratuga.
Veggfóðrið kemur í sex litasamsetningum, allt frá líflegum litatónum Bright Multi til glæsilegra eintóna Monochrome, og fæst ýmist á nútímalegum möttum bakgrunni eða með rómantískum gljáa.
56.019 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun

















Gioco Vintage Blush - Arte
Edge Dunes - Arte
Chinoiserie Haze, Sand - Rebel Walls
Prism, Pastel - Cole & Son
Manchas Saffron - Arte
Poppy Meadow, Rainbow - Rebel Walls
Límband - Tesa, Precision gult 19mm
Bumblebee Green - Rebel Walls
Bouclé Deep Teal - Arte