Cornflower, Lemon/Sage - Morris & Co
Cornflower, Lemon/Sage – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Cornflower er djörf samsetning í einkennandi vínviðarstíl John Henry Dearle, listræns stjórnanda William Morris. Aðalblómamótífin og einkennandi punktagrunnurinn eru trú einstakri nálgun Dearle. Cornflower er hrein blómahylling; með túlípönum, súlublómum, freyjubrám og auðvitað kornblómum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
43.627 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Nomi - Boråstapeter
Saga - Boråstapeter
Frutto Proibito Print Room Blue & Lemon - Cole & Son
Arance Lemon & Seafoam - Cole & Son
Skogsblomst - Boråstapeter
Snakeshead, Forest/Thyme - Morris & Co
Blomsterfröjd - Boråstapeter
Magnolia Garden - Boråstapeter
Värmdö - Boråstapeter
Chiavi Segrete Parchment & Metallic Gold - Cole & Son
Blossom II - Boråstapeter
Rose Garden - Boråstapeter
Cocktails Pastel - Cole & Son
Chiavi Segrete Olive - Cole & Son
Västigårn - Boråstaper
Kim - Boråstapeter
Friedrich - Boråstapeter
Svea - Boråstapeter
Göteborg - Boråstapeter
Hagtorn - Boråstapeter
Norbury, Woad/Linen - Morris & Co
Signe - Boråstapeter