Chamomile, China Blue - Morris & Co
Chamomile, China Blue – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Hið látlausa og friðsæla mynstur Chamomile fannst í skissum Morris og er talið vera frumhugmynd að útsaumsmynstri. Hönnunarteymi Morris & Co þróaði upprunalega listaverkið af vandvirkni yfir í heildstætt, endurtekið mynstur. Þar sem Morris hafði merkt fyrir sporum í útsauminn hélt teymið í þá fínlegu línugerð og varðveitti þar með sjarma og heiðarleika upprunalegu teikningarinnar. Einstakt og ósvikið, rétt eins og Morris.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
38.229 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Nelson Juniper Green - Arte
Vintage Palms - Boråstapeter
Nelson Papyrus - Arte
Zen Mural, Graphite - Sandberg
Ovillo Linen - Arte
P8020 vegglisti
Lise, Misty Blue - Sandberg
Casalian Evergreen - Arte
Folklore - Boråstapeter
DX170-2300 gerefti
Julie, Dark - Sandberg
Ash Grey - Boråstapeter
Soaped Oak - Boråstapeter
Fredrik - Boråstapeter
Fredrika - Boråstapeter