Casalian Silver Pine - Arte
Casalian Silver Pine – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Casalian línan er einmitt gerð sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Casalian mynstrið á rætur að rekja til eins mest framandi staðar í heiminum: Filippseyja. Ein mesta auðlind landsins liggur í bananatrénu en Arte hefur notað börk trésins til að skapa þetta einstæða veggfóður. Mjóu, lituðu ræmurnar eru ofnar saman í höndunum sem gerir hvern metra af þessu veggfóðri einstakan. Saumarnir sjást vel, en það er með ráðum gert og undirstrikar sjarmann sem felst í náttúrulegum uppruna.
Casalian er handgert, náttúrulegt veggfóður úr bananaberki. Það er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúruefnum
19.718 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun









Alma Eggshell - Arte
Valentin Ruby Red - Sandberg
Tintura Mocha - Arte
Tulle Nude - Arte
Puro Mocha - Arte
Senzo Spot, Charcoal & Metallic Gold on Teal - Cole & Son
Edvin, Indigo Blue - Sandberg
Carmen, Soft Olive - Cole & Son
Pure Willow Boughs, Eggshell/Chalk - Morris & co
Nelson Plaster - Arte
Lin Normandie Capri - Arte
Le Papier Tissé Eggshell - Arte
Weave Latte - Arte
Lin Bleu de Toi - Arte
Prism, Pastel - Cole & Son
Lin Normandie Sorbet - Arte
Solveig, Colorful - Sandberg
Solveig, Midnight Blue - Sandberg
Éclat Smoke - Arte
Satara, Slate & White Mica on Print Room Blue - Cole & Son
Stella Misty Blue - Sandberg