Canvas Sage - Arte
Canvas Sage – Arte
Canvas er innblásið af áferð hörs á fallegan og tímalausan hátt. Ofið mynstrið og einstaklega mött áferðin sýnir greinilega einkennandi uppbyggingu ekta hörvefnaðar. Canvas kemur í 12 náttúrulitum. Þessi útgáfa er í blágrænu.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Canvas er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Cupula Cocoa - Arte
Vintage Palms - Boråstapeter
Balabina, Red on Crimson - Cole & Son
Gunnebo - Boråstapeter
Maja Sage Green - Sandberg
Manchas Midnight - Arte
Ivy, Blue - Sandberg
Picnic Check - Boråstapeter
Eternal Flower - Boråstapeter
Tana Beige - Arte
Corteza 34203 - Arte
Magnolia - Cole & Son
Pantheon Navy - Arte
Biseau Grey Forest - Arte
Solveig, Midnight Blue - Sandberg
Safari Dance, Ginger & Red on Charcoal - Cole & Son
Magnolia - Cole & Son
Canvas Dew - Arte