Arbutus, Woad/Russet - Morris & Co
Arbutus, Woad/Russet – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Mynstrið Arbutus var hannað af Kathleen Kersey, meðlimi í upphaflega Morris & Co hönnunarhópnum, í aðdraganda fyrri heimsstyrjaldarinnar árið 1914. Mynstrið fangar Morris stílinn fullkomlega og var eitt af tveimur mynstrum sem Kersey bjó til fyrir veggfóður.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
35.205 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Arne Jacobsen Ranke - Boråstapeter
Leipzig - Boråstapeter
Flower Garden Mural - Boråstapeter
Trädgårdsfröjd - Boråstapeter
Summer Lily - Cole & Son
CB501 loftalisti
Palm Leaves, Alabaster Pink & Mint - Cole & Son
Shades Malachite - Boråstapeter
Nelson Sapphire - Arte
Tasar Mushroom - Arte