Að mála glugga og hurðir úti
með ONE Door & Window Tech akrýlmálningu
Aðferð
Undirlagið skal vera hreint og þurrt (mest 16% raki í viði, mælið með rakamæli).
Nýmálun
- Slípið og opnið heflaðan við með sandpappír nr. 80.
- Gegndreypið alla fleti sem mála skal með Tinova Wood Base Oil og þá sérlega vel liggjandi við og gljúpa fleti eins og endatré.
- Grunnið alla fletina með Tinova Primer Exterior. Best er ef það er gert fyrir glerjun svo falsinn sé einnig grunnaður.
- Málið 2 umferðir með ONE Door & Window Tech.
- Á lítið hallandi fleti er ráðlegt að setja aukaumferð.
Endurmálun
- Þvoið allan flötinn með Original Målartvätt. Berið blönduna á með svampi eða bursta. Látið blönduna liggja á fletinum í nokkrar mínútur og skrúbbið af með blautri tusku eða bursta og vatni. Ef á fletinum er mygla, mold eða annar gróður skal þvo flötinn með þörunga- og mygluhreinsi. Skolið vel eftirá með vatni. Látið flötinn þorna vel áður en málað er.
- Alla gamla og lausa málningu skal fjarlægja. Slípið gljáandi fleti matta með sandpappír til að tryggja góða viðloðun. Fúa eða gráma í tré skal pússa niður eða fjarlægja með grámahreinsinum Tinova Wood Cleaner uns komið er í eðlilegan viðarlit. Eftir meðferð með grámahreinsi þarf viðurinn að þorna vel í 1-3 daga. Slípið svo með sandpappír nr. 80.
- Ber viður skal gegndreyptur með með Tinova Wood Base Oil. Svo er hann grunnaður með Tinova Primer Exterior.
- Málið tvær umferðir með ONE Door & Window Tech.
- Á lítið hallandi fleti er ráðlegt að setja aukaumferð.
Annað
Hrærið vel í dósinni fyrir notkun. Málið ekki ef sól skín beint á flötinn eða ef hætta er á regni eða daggarmyndun innan 6 klukkustunda eftir lok verks.
*Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.
Heilsufars- og umhverfismál
Ekki láta málningardósina standa opna meðan á verki stendur. Þrífið verkfæri strax eftir notkun. Athugið að kviknað getur í olíublautum tuskum og tvisti af sjálfu sér og verður að bleyta þær með vatni áður en þeim er hent á öruggan stað. Hellið ekki málningar- og hreinsiefnaleifum í niðurföll. Skilið efnaleifum og tómum umbúðum til endurvinnslustöðva.
Tæknilegar upplýsingar
Til notkunar: Utanhúss
Tegund: Akrýl (ONE Door & Window Tech), alkýðolía (Tinova Wood Base Oil)
Gljástig: 35
Litir: Allir
Yfirmálun við 23°C/50% raka: Tinova Wood Base Oil 24 klst; Tinova Primer Exterior 16 klst; ONE Door & Window Tech 4 klst
Þynning: Vatn
Verkfæri: Penslar, kústar, sprautur
Þekja: Tinova Wood Base Oil 4,5-5,5 m2/l; Tinova Primer Exterior 4-8 m2/l; ONE Super Tech 6-8 m2/l
Hreinsun: Sápuvatn
Geymsla: Í frostfríu rými