Að mála heita potta
EfniSlitsterkt og gljáandi tveggja þátta epoxýlakk.
AðferðÞegar mála skal heita potta skiptir undirbúningur öllu máli. Athugið einnig að mála ekki á kvöldin vegna hættu á daggarmyndun. Jafnframt er mikilvægt að málningin á pottinum nái að þorna í 3-5 daga fyrir notkun.
Nýmálun plastpotta- Mattið plastið með sandpappír (nr. 180-220).
- Hreinsið burt slípiryk og önnur óhreinindi.
- Grunnið t.d. með Gelshield 200 epoxýgrunni.
- Málið tvær umferðir með Intergard 740.
- Ef notuð er hálkuvörn er ágætt að bæta henni út í málninguna í seinni umferð.
- Opnið steininn (fjarlægið sementshúð) með steinslípun eða kröftugum háþrýstiþvotti. Potturinn þarf að þorna vel.
- Grunnið með Intergard 740 málningu, 25% þynntri með International GTA220 þynni.
- Málið tvær umferðir með Intergard 740.
- Ef notuð er hálkuvörn er ágætt að bæta henni út í málninguna sem málað er með í seinni umferð.
- Mattið yfirborð og þrífið fleti.
- Fjarlægið alla lausa málningu með kröftugri háþrýstidælu. Potturinn þarf að þorna vel.
- Málið 1-2 umferðir með Intergard 740.
- Ef notuð er hálkuvörn er ágætt að bæta henni út í málninguna sem málað er með í seinni umferð
Ekki láta málningardósina standa opna meðan á verki stendur. Þrífið verkfæri strax eftir notkun. Athugið að kviknað getur í olíublautum tuskum og tvisti af sjálfu sér og verður að bleyta þær með vatni áður en þeim er hent á öruggan stað. Hellið ekki málningar- og hreinsiefnaleifum í niðurföll. Skilið efnaleifum og tómum umbúðum til endurvinnslustöðva.