fbpx

Að hreinsa og geyma pensla á umhverfisvænan hátt

Lærum að meðhöndla penslana á umhverfisvænan hátt

 

Að-hreinsa-penslana-300x169

Vatnsþynnanleg málning

  1. Ertu í miðju verki og vilt losna við að þrífa pensilinn þar til þú kemst aftur í verkið? Þá nægir að vefja honum í plastpoka. Best er að líma plastpokann saman við skaftið með límbandi. Þannig geymist hann í 1-2 daga.
  2. Eftir málun er best að skafa mestu málninguna úr penslinum.
  3. Einfaldast er að leggja pensilinn í bleyti í volgt vatn í um tvær klst. Þá skolast málningin auðveldlega úr með vatni.
  4. Þurrkaðu pensilinn loks með hreinum klút og láttu hann þorna flatan eða hangandi með hárin niður. Geymdu pensilinn á þurrum stað fram að næsta verkefni.

 

Terpentínuþynnanleg málning og vatnsþynnanleg olíuviðarvörn

  1. Ertu í miðju verki og vilt losna við að þrífa pensilinn þar til þú kemst aftur í verkið? Þá nægir að láta hann standa í vatnsbaði. Þannig geymist hann í 1-2 daga.
  2. Eftir málun skaltu hella vænum slurk af penslasápu í dós og hreinsa pensilinn með því að þrýsta honum upp með hliðum dósarinnar til að sápan nái vel inn á milli háranna. Láttu pensilinn síðan standa í sápunni í um tvær klst.
  3. Skolaðu sápuna vandlega úr með vatni.
  4. Þurrkaðu pensilinn loks með hreinum klút og og láttu hann þorna flatan eða hangandi með hárin niður. Geymdu pensilinn á þurrum stað fram að næsta verkefni.

 

Harðir penslar  Gleymdir þú að þrífa pensilinn? Er hann orðinn grjótharður og ónothæfur? Láttu pensilinn þá standa í penslasápu í um tvær klst. Þá verður hann orðinn nægilega mjúkur til að þrífa hann, skv. ráðum hér að ofan.

 

Leysiefni  Mundu að hella aldrei leysiefni/terpentínu í vaskinn. Ef þú hefur notað slík efni til að þrífa pensilinn þinn (alveg ónauðsynlegt og skaðlegt umhverfinu!) skaltu setja lokið á dósina og láta hana standa í 24 klst. Þegar litarefnið úr málningunni hefur fallið til botns getur þú hellt afganginum af terpentínunni aftur í flöskuna til notkunar síðar. Láttu litinn þorna í dósinni áður en þú fargar henni á næsta móttökustað fyrir úrgang og flokkast dósin þá sem hættulegur úrgangur. Veldu eins litla dós og mögulegt er við hreinsunina til að nota ekki meira leysiefni en nauðsynlegt er – jörðin okkar verður þér þakklát!

Fleiri blogg

Nýmálað á Nönnustíg

Húsið við Nönnustíg á stutt í áttræðisafmælið. Þrátt fyrir það er húsið einstaklega glæsilegt eftir viðgerðir og málun í sumar.

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping