Að mála timburhús
með þekjandi ONE Super Tech nanóakrýl
Aðferð
Flöturinn sem mála skal þarf að vera hreinn og þurr (hámark 16% raki, notið rakamæli).
Nýmálun
- Slípið og opnið heflaðan við með sandpappír, t.d. nr. 100. Gegndreypið alla fleti sem mála skal með Tinova Wood Base Oil og þá sérlega vel liggjandi við og gljúpa fleti eins og endatré.
- Grunnið allan flötinn með Tinova Primer Exterior.
- Málið yfir 2 umferðir af ONE Super Tech.
- Á hallandi fleti er ráðlegt að setja aukaumferð.
Endurmálun
- Þvoið allan flötinn með Original Målartvätt. Blandið Målartvätt með allt að 20 hlutum vatns móti 1 hlut hreinsiefnisins. Fyrir mjög óhreina fleti skal blanda vatni í hlutfallinu 10:1. Berið blönduna á með svampi eða bursta. Látið blönduna liggja á fletinum í nokkrar mínútur og skrúbbið af með blautri tusku eða bursta og vatni. Ef á fletinum er mygla, mold eða annar gróður skal þvo flötinn með þörunga- og mygluhreinsi. Skolið vel eftir á með vatni. Látið flötinn þorna vel áður en málað er.
- Alla gamla og lausa málningu skal fjarlægja. Slípið gljáandi fleti matta með sandpappír til að tryggja góða viðloðun. Fúa eða gráma í tré skal pússa niður eða fjarlægja með grámahreinsinum Tinova Wood Cleaner uns komið er í eðlilegan viðarlit. Eftir meðferð með grámahreinsi þarf viðurinn að þorna vel í 1-3 daga.
- Hreinan beran við (þar sem málning hefur flagnað af) skal fúaverja fyrst með Tinova Wood Base Oil. Grunnið síðan með Tinova Primer Exterior.
- Málið yfir 2 umferðir af ONE Super Tech.
Annað
Hrærið vel í málningarfötunni áður en málað er. Ekki mála ef sólskin skín beint á flötinn eða ef hætta er á rigningu eða daggarmyndun næstu klukkutímana eftir málun.
*Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.
Heilsufars- og umhverfismál
Ekki láta málningardósina standa opna meðan á verki stendur. Þrífið verkfæri strax eftir notkun. Athugið að kviknað getur í olíublautum tuskum og tvisti af sjálfu sér og verður að bleyta þær með vatni áður en þeim er hent á öruggan stað. Hellið ekki málningar- og hreinsiefnaleifum í niðurföll. Skilið efnaleifum og tómum umbúðum til endurvinnslustöðva.
Tæknilegar upplýsingar
ONE Super Tech
Til notkunar: Utanhúss
Tegund: Akrýl
Gljástig: 30% eða hálfmatt
Yfirmálun: 2 klst
Hiti við málun: Minnst +5°C, mest +25°C
Rakastig: 40-80%, kjörrakastig 65%
Þynning: Vatn
Verkfæri: Penslar, rúllur, sprautur
Þekja nýmálun: Um 6 m2/l
Þekja endurmálun: Um 8 m2/l
Hreinsun: Sápuvatn