
Willow Boughs Green - Morris & Co
Willow Boughs Green – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Willow Boughs var fyrst framleitt árið 1887 og er eitt af mynstrum Morris sem þekkjast á augabragði. Stilkar og viðkvæm grátvíðisblöð fléttast saman í þessa langlífu hönnun – sem skilgreinir í sjálfu sér varanlegan orðstír Morris í hönnunarheiminum. Mynstrið er yfirborðsprentað, hér í nýjum og ferskum litasamsetningum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
33.224 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun
Tengdar vörur
Tengdar vörur
-
Acquario Ink – Cole & Son
57.539 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Afrika Kingdom, Olive Green & Spring Green on Cream – Cole & Son
55.243 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Arrow Gravel – Arte
35.597 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Bloom, Gray – Sandberg
6.650 kr. fermetraverð Setja í körfu -
Brushed Suede Sand – Arte
34.647 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Cuadro Greige – Arte
47.627 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Cuadro White – Arte
47.627 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Edge Kapok – Arte
38.316 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Hanna Werning Hoppmosse – Boråstapeter
15.500 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Infini Mushroom – Arte
14.833 kr. lengdarmetraverð Setja í körfu -
Lana Espresso – Arte
32.425 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Lin Abaca – Arte
31.093 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Lin Mistral – Arte
31.093 kr. Setja í körfu -
Lin Toffee – Arte
31.093 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Maidenhair, China Blue – Cole & Son
25.824 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Mischievous Monkeys, Lush – Rebel Walls
6.650 kr. fermetraverð Setja í körfu -
Moa – Boråstapeter
8.225 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Monica Misty Blue – Sandberg
6.650 kr. fermetraverð Setja í körfu -
Montagna Juniper – Arte
32.425 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Petals Sky – Rebel Walls
6.650 kr. fermetraverð Setja í körfu -
Pimpernel Bullrush/Russet – Morris & Co
37.892 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Puro Mocha – Arte
35.597 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Strawberry Thief Chocolate/Slate – Morris & Co
37.892 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Symbiosis Goldstorm – Arte
13.063 kr. lengdarmetraverð Setja í körfu -
The Wave – Boråstapeter
16.330 kr. rúlluverð Setja í körfu -
Tulle Grey Blue – Arte
36.945 kr. rúlluverð Setja í körfu