
W113 Cobble veggþiljur
W113 Cobble veggþiljur
L 200 x H 25 x W 2.2 cm Purotouch®
W113 Cobble er hluti af þrívíddarvegglínunni frá Orac Decor. Þetta mynstur er með einstaklega skemmtilegri áferð sem minnir svolítið á gamla steinlagða götu. Ljós- og skuggaáhrifin á yfirborðinu breytast á skemmtilegan hátt eftir því hvar maður er staddur í rýminu. Ótal möguleikar felast í uppsetningu á þessum þiljum, t.d. má nota þær til að móta rúmgafla, klæða framan eldhúseyjar eða þekja heilu veggina. W113 passar vel með CX190 og SX194 listunum.
Veggþiljurnar eru auðveldar í uppsetningu og unnar úr sjálfbærum efnum. Að auki hafa þær hitaeinangrandi eiginleika og bæta hljóðvist (30%). Veggþiljurnar koma grunnaðar en við mælum með að grunna aðra umferð undir málun ef álag er á fletinum.
ATH. Notið Decofix Power límkítti til að tryggja að þiljurnar losni ekki með tímanum.
Tveir listar þekja eins fermetra flöt.
10.290 kr.