Tvíþátta vatnsþynnanlegt pólýúreþanlakk - Almatt

10.890 kr.

Tvíþátta vatnsþynnanlegt pólýúreþanlakk – Almatt

Puroc TR XtraMat

Puroc TR Xtra Mat er almatt glært tveggja þátta vatnsþynnanlegt pólýúreþanlakk, ætlað til verndar yfirborði með miklu álagi, t.d. gólf- og viðarborðplötur innanhúss; berar, bæsaðar eða málaðar. Lakkið hentar einnig sem parketlakk og myndar þar að auki margfalda aukavörn á málaða veggi og steinefnaundirlag. Puroc TR Xtra Mat er jafnframt frábær vörn á vissar tegundir af sementsgólffloti sem hannað er með lökkun í huga. Þegar glær Stuc Sealer grunnur er notaður undir lakkið helst litur flotsins óbreyttur. Sumt gólfflot er ekki ætlað til yfirlökkunar.

Puroc TR Xtra Mat hefur langan notkunartíma og er auðvelt í notkun, þornar hratt, þolir bleytu og kemísk efni vel, er höggþolið og afar slitsterkt. Lakkið er létt í þrifum og lyktarlítið og hentar því sérlega vel í rýmum þar sem leysiefnalakk er ekki leyft. Hentar ekki á bílskúrsgólf.

10.890 kr.

91 til á lager
Vörunúmer: 5247507 Vöruflokkar: , ,

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Halda áfram að versla