Techno Bee Embroidered, Ivory - Arte
Techno Bee Embroidered, Ivory – Arte
Green House veggfóðurslínan frá Moooi er sláandi falleg í sínum hljóðláta og fágaða glæsileika. Andrúmsloftið minnir á sólstofur frá Viktoríutímanum. Saman skapa mynstrin undursamlegan heim þar sem þrívíddarhönnunin býr til áþreifanlega upplifun. Línan er unnin úr hágæðaefnum, með áferð viðarspóns, silki, jacquard og bouclé vefnaðar.
Techno Bee Embroidered er textílveggfóður með skýjuðu bylgjumynstri (e. moiré) þar sem mótífið er saumað út á textílblöndu af bómull og hör.
Techno Bee textílveggfóðrið er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
46.140 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

Edge Flax - Arte
Hav, Misty Blue - Sandberg
Kristoffer Spring Green - Sandberg
Pure Strawberry Thief, Gilver/Graphite - Morris & Co
Waffle Weave Brick Red - Arte
Stella Misty Blue - Sandberg
Symbol Elephant - Arte
Morängen Hazel - Sandberg
Lignes Ochre - Arte
Capas 34300 - Arte
Weave Deep Sea - Arte
Palm Leaves - Cole & Son