Tasar Mushroom - Arte
Tasar Mushroom – Arte
Tasar er innblásið af ekta silki. Fallegt í einfaldleika sínum, með fíngerðum ójöfnum silkivefnaðar. Þessi náttúrulega vara leiðir alltaf af sér ríkulega, litsterka tóna án þess að vera yfirþyrmandi. Tasar kemur í 11 litum. Þessi útgáfa er í millidröppuðum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Tasar er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Lin Bone - Arte
R12 rósetta
Lin Normandie Moonlight - Arte
Latus Bisque - Arte
Alvar Aalto MIT - Boråstapeter
Pine, Grey - Sandberg
Mary Isobel, Russet/Taupe - Morris & Co
Sarana Cream - Arte
Miami - Cole & Son
Leopard Walk, Orange on Linen - Cole & Son
Eri Copper - Arte
Macchine Volanti, Slate Blue & Metallics - Cole & Son (2 rúllur)
Lin Normandie Milk - Arte
Atlas Nougat - Arte
Chanderi Aztec Blue - Arte
Alma Taupe - Arte
Pandan Bark - Arte
Le Sisal Sahara - Arte
Infini Mushroom - Arte
Terre de Lin Talc - Arte
Nongo Blue Orange - Arte
Cow Parsley, White & Soft Yellow - Cole & Son
Lin Moonlight - Arte
Nelson Carmin - Arte
Lin Bain de Boue - Arte
Marsh Ash - Arte