Sunburst Natural - Arte
Sunburst Natural – Arte
Veggklæðningarnar í Boutique-línunni endurspegla japanskan glæsileika frá því um miðja síðustu öld. Eftir síðari heimsstyrjöldina upplifði Japan gífurlegan efnahagsvöxt sem leiddi til umbreytinga sem einkenndust af bjartsýni og framsækinni hugsun. Í innanhússhönnun birtist þessi vonarstemning í nýjum, að mestu glansandi efnum og glæsilegum mynstrum – sem gnægð er af í Boutique veggfóðurslínunni.
Sunburst er áhrifamikið veggfóður sem sýnir rísandi, geislandi sól á himni. Það er gert úr afar fínum viðarspón. Mynstrið er sjálfstæð heilmynd og tengist ekki mynstri annarrar heilmyndar, séu tvær settar hlið við hlið. Hver mynd er 3,20 m á breidd og 3,30 m á hæð. Samtals 10, 56 m2.
Sunburst veggfóðrið er náttúrulegur viður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að úða bakhliðina fyrst með vatni til að gera hana raka – festið síðan upp með því að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel en eindregið er mælt með að fá fagmann í verkið. Góð myndbönd eru á heimasíðunni sem sýna uppsetningu skref fyrir skref.
399.500 kr.
Í boði sem biðpöntun

