Sjónsteypuvörn

Stone & Brick Protector

Stone & Brick Protector er mjög virk yfirborðsvernd og vatnsfæla fyrir undirlag úr steinefnum. Hún gengur inn í gljúpa fleti og myndar verndarlag gegn vatni, raka, feiti, olíum, sýrum, basískum efnum og söltum. Hindrar vöxt myglu, sveppa og myndun saltútfellinga á steinsteyptum flötum. Frábær sjónsteypuvörn.

Polyvine Stone & Brick Protector er tær léttfljótandi vökvi sem er vatnsþynnt dreifa krossbundinna nanóagna, yfirborðsvirkra og flæðistillandi efna. Lokar yfirborði til langs tíma gegn óhreinindum og vatni. Hentar til notkunar bæði utan- og innanhúss. Eftir þornun er áferð almött og helst náttúrulegt útlit undirlagsins því óbreytt eftir sólarhrings þornun og hörðnun. Efnið myndar ekki sýnilega filmu. Hvorki skal bera á málað yfirborð né skal mála yfir Polyvine Stone & Brick Protector.

Dæmigerð notkunarsvið: Steinsteypa, sjónsteypa, steinar, múr, múrsteinn, flögusteinn, útiarnar og múrsteinsveggir.

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping