Silk Bombis, Silk Plum – Arte
26.300 kr. lengdarmetraverð
Green House veggfóðurslínan frá Moooi er sláandi falleg í sínum hljóðláta og fágaða glæsileika. Andrúmsloftið minnir á sólstofur frá Viktoríutímanum. Saman skapa mynstrin undursamlegan heim þar sem þrívíddarhönnunin býr til áþreifanlega upplifun. Línan er unnin úr hágæðaefnum, með áferð viðarspóns, silki, jacquard og bouclé vefnaðar.
Silk Bombis er textílveggfóður. Abstrakt blómamynstrið minnir á krónublöð máluð með vatnslitum. Hönnunin sýnir áþreifanleg gæði hrásilkis og er sett fram í svokallaðri fil-à-fil tækni, sem er hugtak í textíliðnaðinum fyrir „þráð í þræði“. Lóðréttu þræðirnir eru örlítið sýnilegir og gefa veggfóðrinu lúxus áferð. Veggfóðrið kemur í mjúkum hlutlausum litum og pasteltónum.
Silk Bombis veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun
May Meadow, Pastel - Rebel Walls
Breathe - Rebel Walls
Unicorn Dream, Sky - Rebel Walls
Stravinsky, Metallic Silver - Cole & Son
Wilma, Green - Sandberg
Stravinsky, Metallic Bronze - Cole & Son
Lingering Wall - Rebel Walls
Palm Spring, Pearl - Rebel Walls
Aquatic Life - Rebel Walls
Polyfilla viðarspartl