Shimmer Eclipse - Arte
Shimmer Eclipse – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Shimmer veggfóðrið er einmitt hannað sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Shimmer veggfóðursmynstrið er hannað úr ofnum gljásteini (e. mica). Fyrst eru trefjaarkir litaðar með álímdum gljásteinsflögum. Þær eru svo skornar í mjög grannar ræmur sem síðan eru ofnar saman í hefðbundnum handvefstól. Útkoman er veggfóður með útliti sem minnir á mjög fínlega og mjúkglitrandi mósaík.
Shimmer er handofið veggfóður úr náttúruefnum. Bakið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
20.893 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun









Tresse Khaki - Arte
Skogsblomst - Boråstapeter
Gocken Jobs Ros och Lilja - Boråstapeter
Chinoiserie - Boråstapeter
Blossom Mini - Boråstapeter
Tela Nude - Arte
Brush Green - Rebel Walls
Picnic Check - Boråstapeter
Skaft - Purdy, Power Lock 122-244cm
Erik, Dusty Pink - Sandberg