Shards Orange Gold – Arte

35.834 kr. rúlluverð

Sculptura sækir innblástur sinn í hefðbundna gifsvinnu. Gifsræmum var handraðað í mynstur og síðan umbreytt í ótrúlega vínilveggfóðurslínu. Dæmigerð uppbygging gifsins á möskvum, með sprungum og ójöfnum svæðum sjást greinilega. Þetta heillandi veggfóður með sínum óvæntu geómetrísku mynstrum gefur veggjum mildan svip með lit, upphleyptri uppbyggingu og lífrænni áferð. Skuggaleikurinn milli ljóss og myrkurs vekur slétta veggi til lífsins. Í stuttu máli lyftir Sculptura innanhússhönnuninni upp á látlausan hátt án þess að krefjast allrar athyglinnar.

Veggfóðrið Shards er samsett úr brotnum formum. Það sækir innblástur í handverk úr gifsi, sem gefur mynstrinu hefðbundinn blæ. Ójöfnur á yfirborðinu með óreglulegu ljósinnfalli skapa aukinn léttleika í rýmið.

Shards er vínilveggfóður á pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðursins eða setja límið á vegginn en þá þarf að úða bakhliðina fyrst með vatni til að gera hana raka. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.

Leiðbeiningar fyrir ARTE veggfóður með pappírsbaki

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 70 cmRúllulengd: 10,05 mMynsturhæð: 45 cm
Áætla rúllufjölda
m
m
cm
m
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 42509 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , ,

Karfa

2

Millisamtala: 71.668 kr.

Skoða körfuGreiðsluferli