Frekari upplýsingar
| Stærð | 10m2, 5m2 |
|---|
Price range: 93.246 kr. through 153.878 kr.
Í boði sem biðpöntun
Segulmagnaða tússtöfluveggfóðrið frá Smarter Surfaces er fjölnota veggfóður í fyrsta flokks gæðum. Með einfaldri uppsetningu er hægt að umbreyta vegg í hágæða tússtöflu með öflugri segulmögnun. Þar með er hægt að komast hjá því að fjárfesta í dýrri segultússtöflu fyrir skólann eða fyrirtækið; í staðinn má umbreyta veggnum sjálfum í tússtöflu með þægilegum hætti. Eftir veggfóðrun er hægt að festa segla og skrifa beint á vegginn.
Segulmagnaða tússtöfluveggfóðrið opnar fyrir marga möguleika á vinnusvæðinu. Þannig er hægt að bæta aðstöðu fyrir sköpun, skilvirkni og einbeitingu án þess að fórna hönnun rýmisins með klunnalegum veggtöflum eða töflustöndum. Hér er þér gert kleift að búa til segulmagnaðan tússtöfluflöt en halda stílnum á vinnusvæðinu.
Ef rýmið er með mikla náttúrulega lýsingu eða þið viljið bæta við möguleikum og fá segulmagnaðan tússtöfluflöt sem hentar einnig fyrir skjávarpa þá mælum við með valkosti hér á síðunni sem við köllum Segulmagnað tússtöfluveggfóður fyrir skjávarpa.

| Stærð | 10m2, 5m2 |
|---|