Rovine Onyx – Arte

135.921 kr.

Sculptura sækir innblástur sinn í hefðbundna gifsvinnu. Gifsræmum var handraðað í mynstur og síðan umbreytt í ótrúlega vínilveggfóðurslínu. Dæmigerð uppbygging gifsins á möskvum, með sprungum og ójöfnum svæðum sjást greinilega. Þetta heillandi veggfóður með sínum óvæntu geómetrísku mynstrum gefur veggjum mildan svip með lit, upphleyptri uppbyggingu og lífrænni áferð. Skuggaleikurinn milli ljóss og myrkurs vekur slétta veggi til lífsins. Í stuttu máli lyftir Sculptura innanhússhönnuninni upp á látlausan hátt án þess að krefjast allrar athyglinnar.

Rovine er mikilfengleg heilmynd úr vínil sem líkir eftir þekktri málmristu af grískum rústum. Teikningin sýnir hrörnun bygginga úr fornöld. Hún var tileinkuð Monsieur Descamps, einum af listamönnum franska konungsins. Myndin er 200 cm x 300 cm en má endurtaka með því að setja aðra heilmynd við hliðina.

Rovine er vínilveggfóður á pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

Í boði sem biðpöntun

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 42560 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , , ,

Karfa

4

Millisamtala: 243.423 kr.

Skoða körfuGreiðsluferli