Riverbank Autumn Gold - Arte
Riverbank Autumn Gold – Arte
Veggklæðningarnar í Boutique-línunni endurspegla japanskan glæsileika frá því um miðja síðustu öld. Eftir síðari heimsstyrjöldina upplifði Japan gífurlegan efnahagsvöxt sem leiddi til umbreytinga sem einkenndust af bjartsýni og framsækinni hugsun. Í innanhússhönnun birtist þessi vonarstemning í nýjum, að mestu glansandi efnum og glæsilegum mynstrum – sem gnægð er af í Boutique veggfóðurslínunni.
Riverbank er ofin veggklæðning, innblásin af klassískum veggteppum. Það sýnir gróskumikla árbakka með japönskum trönum sem kíkja upp úr gróðrinum. Þessi einstaka fuglategund táknar heppni og langlífi í Japan. Myndin er vísvitandi „pixluð“ sem tilvísun til bjartsýni Japana um miðja öldina.
Riverbank veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
28.900 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

