Rattan - opinn reyrvefur 60x100 cm
Rattan – opinn reyrvefur 60×100 cm
Reyr (rattan) er efni unnið úr mörgum tegundum pálmatrjáa sem vaxa í hitabelti Afríku, Asíu og Eyjaálfu. Reyr er níðsterkur og hefur í gegnum tíðina verið mest notaður í körfur og fléttaður í vef fyrir stóla. Opinn reyrvefur er misstórgerður, þessi er “opinn” eða með um sentimetravíðum götum. Reyrvefinn má nota á ýmsa vegu, í raun ræður hugmyndaflugið för. Sem dæmi má nefna í skápahurðir, skilrúm, lampaskerma, hillur, bakka og fleira. Við mælum með sérstyrktri tegund til stólasetugerðar.
Reyrinn er einfaldur í uppsetningu. Mikilvægast er að leggja hann í bleyti, í a.m.k. 2 klst. Þá mýkist hann og slaknar aðeins og verður auðveldur að meðhöndla. Reyrinn er síðan heftaður á flötinn, t.d. á bak hurðaramma. Hann gæti virst svolítið ójafn í fyrstu en hann strekkist þegar hann þornar og jafnast út.
Opinn reyrvefur (rattan), er seldur í metramáli hér í vefverslun. Breidd er 60 cm. Hægt er að kaupa eftir nákvæmu máli, t.d. 1.8 m en þá skal panta í s. 517 0404 eða senda póst á serefni@serefni.is
6.160 kr.



Senzo Spot, Soot & Snow - Cole & Son
Tree Canopy - Boråstapeter
Sky - Boråstapeter
Semiramis - Boråstapeter
Magnolia Garden - Boråstapeter
Kingdom of the Willow - Boråstapeter
Tamba Clay - Arte
Vintage Palms - Boråstapeter
Narina, Soot & Snow - Cole & Son
Tamba Chalk - Arte
Granville Beige Grey - Arte
Tela Forest Grey - Arte
Dreamy Tree - Boråstapeter
Palm Leaf - Boråstapeter
Swanlake - Boråstapeter
Fairies - Boråstapeter
Camellia, Lemon & Sage on Sea Foam - Cole & Son
Linen Sand - Boråstapeter
Le Papier Tissé Eggshell - Arte
Chinoiserie - Boråstapeter
Meadow - Boråstapeter