Reliure Khaki – Arte
73.200 kr. lengdarmetraverð
Allures línan er hylling til franska „savoir vivre“ lífsstílsins á nítjándu öld þegar mikilvægast þótti að hegða sér og lifa á fágaðan hátt. Í innanhússhönnun voru klassísk mynstur endurhönnuð með nútímalegri blæ þar sem smekkvísi og verkkunnátta sameinast í vönduðum efnum, nákvæmu handverki og afburða fallegum frágangi.
Látlausa veggklæðningin Reliure er unnin úr burstuðu rúskinni sem skorið er í ferninga og síðan handsaumað og fléttað saman. Nafnið Reliure (fr. binding) til heiðurs bókbandslistinni og vísar til þess þegar stakar síður eru sameinaðar af nákvæmni í eina heild; þetta er snjöll myndlíking fyrir samhengið í heimi handverks.
Reliure er gert úr 100% ekta nautshúð. Örlítið óreglulegt útlit og litamunur getur átt sér stað. Lítil frávik í hlutföllum eru eðlislæg í handverksframleiðsluferlinu. Þess vegna er ekki alltaf hægt að tryggja fullkomlega nákvæma samsvörun við uppsetningu. Reliure er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Eindregið er mælt með að fá fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun
Alma Marrakech - Arte
Nelson Cream - Arte
Symbol Chalk - Arte
Facet Deep Ocean - Arte
Sergé Denim - Arte
Facet Sage - Arte
Temper Charcoal - Arte
Temper Flame Orange - Arte
Itaya Coquille - Arte
Strelitzia Abaca - Arte
Puro Toffee - Arte
Weave Espresso - Arte