Rattan - opinn reyrvefur fyrir stóla 60x100 cm
Rattan – opinn reyrvefur fyrir stóla 60×100 cm
Reyr (rattan) er efni unnið úr mörgum tegundum pálmatrjáa sem vaxa í hitabelti Afríku, Asíu og Eyjaálfu. Reyr er níðsterkur og hefur í gegnum tíðina verið mest notaður í körfur og fléttaður í vef fyrir stóla. Opinn reyrvefur er misstórgerður, þessi er “opinn” eða með um eins sentimetravíðum götum. Reyrvefinn má nota á ýmsa vegu, í raun ræður hugmyndaflugið för. Sem dæmi má nefna í skápahurðir, skilrúm, lampaskerma, hillur, bakka og fleira. Þessi útgáfa af reyr er sú sterkasta sem hægt er að fá og hentar því vel í stólsetur.
Reyrinn er oftast einfaldur í uppsetningu. Mikilvægast er að leggja hann í bleyti, í a.m.k. 2 klst. Þá mýkist hann og slaknar aðeins og verður auðveldur að meðhöndla. Reyrinn er síðan heftaður og strekktur yfir flötinn eða límdur í stólsetur. Vefurinn gæti virst svolítið ójafn í fyrstu en hann strekkist þegar hann þornar og jafnast út. Hér eru myndbönd sem sýna stólaviðgerðir:
Þessi reyrvefur (rattan) er seldur í metramáli hér í vefverslun. Breidd er 60 cm. Hægt er að kaupa eftir nákvæmu máli, t.d. 1.8 m en þá skal panta í s. 517 0404 eða senda póst á serefni@serefni.is
12.590 kr.



Pentagono Straw - Arte
Newport - Rebel Walls
Le Raphia Tissé Chilli - Arte
Lin Atlantic - Arte
Giraffe's Stroll, Emerald - Rebel Walls
Leaf Love - Rebel Walls
Terre de Lin James - Arte
Ritorto Snow - Arte
Wooden Concrete - Rebel Walls
Le Sisal Jade Green - Arte
La Prairie Warm White - Arte
Bellewood - Rebel Walls
Factory Window - Rebel Walls
Le Raphia Tissé Marigold - Arte