
Queen Cobra Peridot - Arte
Queen Cobra Peridot – Arte
Memento Moooi veggfóðurslínan er innblásin af áhugaverðum dýrum sem finnast ekki lengur hér á jörð; eru útdauð. Þau minna okkur á mikilvægi þess að meta lífið hverja stund, búa til góðar minningar og fagna lífinu eins lengi og það endist. Uppgötvaðu felufiðrildið, fífiltrönuna, gulltígurinn, stökkgeitina og drottningargleraugnaslönguna.
Queen Cobra veggklæðningin er innblásin af taktföstum hlykkjum drottningargleraugnaslöngunnar og grösugum heimkynnum hennar. Hönnunin samanstendur af hringlaga formum sem skarast í dáleiðandi mynstur.
Queen Cobra er unnin úr náttúrulegum, handofnum sísaltrefjum með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn OG veggfóðrið. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem mælt er eindregið með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúruefnum
35.483 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun