Pure Silk Aqua - Arte
Pure Silk Aqua – Arte
Wild Silk veggfóðurslínan er úr ekta silki en það undirstrikar fjölbreytni þessa hreina textíls að í línunni eru þrjár mismunandi tegundir af silki. Hver tegund hefur sína sögu að segja; ein hefur mjúkan gljáa, önnur er grófofin og sú þriðja býr yfir fínlegri fágun. Allar útgáfurnar bera með sér auðþekkta lúxus tilfinningu sem einungis ekta silki gerir. Náttúruleg áferðin bætir tímalausum sjarma við öll rými.
Pure Silk er 100% ekta silki þar sem langþræðir og þverþræðir vefnaðarins eru af mismunandi þykkt. Vefurinn sem myndast er einnig sérstakur vegna þess að sjálfur ívafsþráðurinn er ójafn. Pure Silk silkigarnið er metið fyrir léttleika og ljóma sinn sem gefur handspunnum vefnum einstakt og listrænt útlit.
Pure Silk veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
41.200 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun


Camago Glazed Sage - Arte
Éclat Rust - Arte
Himmel, Light Blue - Sandberg
Franges Khaki - Arte
Betty, Honey - Sandberg
Woods, Metallic Gold on Duck Egg - Cole & Son
Cygne, Noir - Rebel Walls
Linne Blush - Sandberg
Marsh Off-White - Arte
Temper Lavender Grey - Arte
Puzzle Blue Emerald - Arte
Pushkin, Green - Cole & Son
Jon Indigo Blue - Sandberg