Pure Net Ceiling, Stone/Chalk – Morris & Co
37.186 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Hjá Morris & Co voru fimm veggfóður sérstaklega hönnuð fyrir loft – Pure Net Ceiling er eitt þeirra, upprunalega hannað árið 1895. Djarft grafískt mynstrið sýnir laufblöð sem raðast saman í reiti sem minna á rósettur.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun


































Lin Argile - Arte
Turtledove Barn Grey - Sandberg
Lin Normandie Forest - Arte
Lin Abaca - Arte
Terre de Lin Rotin - Arte
Terre de Lin Porcelain - Arte
Lin Normandie Moonlight - Arte
Lin Smoke - Arte
Raphael Forest Midnight Blue - Sandberg
Bower Indigo/Barbed Berry - Morris & Co
Lin Bain de Boue - Arte
Lin Ballet - Arte
Lin Mistral - Arte
Lin Marrakech - Arte
Lin Moccasin - Arte