
Professional P25 er afar slitsterk, vatnsþynnanleg, hálfgljáandi akrýlmálning sem þekur einstaklega vel og gefur nútímalegt útlit sem hentar vel í rýmum með mikilli náttúrulegri birtu frá stórum gluggum. Professional P25 er því heppileg málning fyrir eldhúsveggi, veggi í forstofum og göngum, tómstunda- og skrifstofurýmum, skólum, sjúkrahúsum og í öðru húsnæði þar sem óskað er hálfmattrar áferðar og málningar sem auðvelt er að þrífa.
Professional P25 er ætluð til notkunar á grunnmálaða spartlaða fleti í nýbyggingum eða til almennrar endurmálunar innanhúss á steypta fleti, pússaða sem ópússaða, klæðningar af ólíkri gerð, glertrefjavef o.fl.
Hafa samband
serefni@serefni.is
Sími (354) 5170404
Dalvegur 32b, 201 Kópavogur
Austursíðu 2, 603 Akureyri