fbpx

Nanóakrýl

Nanóakrýl

One Super Tech

ONE Super Tech er sjálfhreinsandi, vatnsþynnanleg akrýlmálning til notkunar á tréverk, litaðar klæðningar, grunnmálað bárujárn og steinsteypta fleti utanhúss. Vegna einstakra eiginleika málningarinnar, sem byggir á nanó-tækni, helst hinn málaði flötur hreinn þar sem regnvatn tekur með sér óhreinindi af honum. Að auki inniheldur One Super Tech efni til varnar myglu.

ONE Super Tech er afar vel þekjandi málning sem gefur jafnt yfirborð og heldur lit sínum vel og lengi. Hún er mjög fljótþornandi með 2 klst. yfirmálunartíma. Ef ONE Super Tech málningin er notuð á við, samhliða Tinova Wood Base Oil og Tinova Primer Exterior, þá endist málningin upp undir 16 ár við eðlilegar aðstæður.

svanurinn                 Tækniblað - tákn

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping