Nuvole al Tramonto Dusk - Cole & Son
Nuvole al Tramonto Dusk – Cole & Son
Fornasetti vísar til samstarfs Cole & Son og ítalska hönnunarfyrirtækisins Fornasetti, sem þekkt er fyrir háklassa, listræna hönnun. Í Fornasetti veggfóðurslínunni mætast breskt hágæða handverk og ítalskur húmor og hugmyndaauðgi. Saman skapa fyrirtækin einstaka töfra með endalausri sköpunargáfu og tímalausri fagurfræði.
Himininn kemur ítrekað fyrir í hönnun Fornasetti og er skýjamynstrið í Nuvole al Tramonto unnið upp úr nákvæmum ætingum sem sýna stormský á fleygiferð um himininn. Veggfóðrið er fáanlegt í tveimur litum, Dusk og Dawn. Dawn fangar fyrstu björtu ljósgeislana árla morguns með mildum blágrænum skýjum sem rísa upp í myntu- og andareggjatónum áður en þau leysast upp í þokubláan vorhiminninn. Dusk sýnir breytilegan kvöldhiminn þar sem flekkir af bleikum skýjum þokast yfir í dempaða fjólubláa tóna áður en þau renna saman við mjúkan sumarblámann.
Þetta er heilmynd; hver rúlla af Nuvole al Tramonto inniheldur fjórar lengjur. Myndin er 2,74 cm á breidd uppkomin og 300 cm á hæð. Myndina má nota á vegg eða í loft. Hægt er að endurtaka mynstrið til hliðar. Lítið mál er að stytta myndina ofan eða neðan frá fyrir veggi sem eru lægri en 300 cm. Hver lengja er 68,5 cm á breidd og 12 m löng. Mynsturhæð er 300 cm. Vinsamlega hafið samband við vefverslun@serefni.is ef þið þurfið aðstoð við útreikninga.
111.448 kr.
Í boði sem biðpöntun































The Path Pastel - Rebel Walls
Gothic Arches Vintage - Rebel Walls
Pússklossi - Friess, 122x70mm
Green Wood Mist - Rebel Walls
Spring Season Blue - Rebel Walls
Granville Antique Mauve - Arte
Strelitzia Alabaster - Arte
Pure Acorn, Ecru/Pewter - Morris & Co
Tintura Olive - Arte
Manchas Midnight - Arte
Hræra fyrir borvél - Mako, 80mm
Pure Lodden, Gilver/Gold - Morris & Co
Solar System - Rebel Walls
Pentagono Fuchsia - Arte
Vintage Garden Velvet - Rebel Walls
Pure Lodden, Charcoal/Gold - Morris & Co
Chiavi Segrete Forest Green - Cole & Son
Sarana Mahogany - Arte
Fairy Tale Castle Blue - Rebel Walls
Tree Canopy - Boråstapeter
Globes Gathering - Rebel Walls
Flower Thread Blue - Rebel Walls
Dazzling Foliage Lush - Rebel Walls
School Atlas - Rebel Walls