Maui Walnut - Arte
Maui Walnut – Arte
Lanai veggfóðurslínan er innblásin af ljúfum sumarkvöldum á Hawaii. Nafnið Lanai merkir verönd á tungu heimamanna og minnir okkur á löng og ljúf sumarkvöld á veröndinni við Suðurhöf. Hvert mynstur í veggfóðurslínunni er handunnið og innfellt eða saumað út af mikilli alúð með rattan og raffía. Þessi dásamlegu handverk eru því næst unnin í þrívídd yfir á víníl. Lanai lifnar við á veggnum í náttúrulegum litasamsetningum.
Maui er næststærsta eyja Hawaii eyjakeðjunnar fögru og er einnig heitið á þessu fallega pálmamynstri. Glæsileg laufin eru saumuð með fallegum raffía-þráðum í hör. Maui veggfóðrið er ótrúlega raunveruleg framsetning á handgerðu fyrirmyndinni.
Maui er vínílveggfóður með pappírsbaki. Athugið að mælt er með að vatnsbleyta pappírsbakið aðeins áður en límið er borið á vegginn og aftan á veggfóðrið. Veggfóðrið er sterkt og þvottheldið. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
48.644 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun

Fig Garden Charcoal - Sandberg
Sweet Pea, Autumnal Multi on Cream - Cole & Son
Sabal Pearl - Arte
Montagna Pearl - Arte
Terre de Lin Poivre Blanc - Arte
Parrot - Boråstapeter
Ebba, Charcoal - Sandberg
Celeste, Misty Blue - Sandberg
Celeste, Red - Sandberg
Spegel, Olive Green - Sandberg
Columbus, Soot & Snow - Cole & Son
Chanderi Peacock - Arte
Alvar Aalto M.I.T. - Boråstapeter
Linnea Misty Blue - Sandberg
Terre de Lin Mint - Arte
Gocken Jobs Ros och Lilja - Boråstapeter
Ovillo Pollen - Arte