Majesto Graphite – Arte
49.500 kr. lengdarmetraverð
Tíska og innanhússhönnun hafa alltaf haft mikil innbyrðis áhrif hvort á annað. Le Couturier veggfóðurslínan leitar eftir innblæstri í heim hátískufatnaðar – heim sem leggur áherslu á handverk þar sem hver flík ber vott um yfirburða listfengi og vandaða útfærslu. Sú nálgun er sameinuð í hágæða textílefnum í hátískuveggfóðri Le Couturier línunnar.
Majesto er hrífandi veggfóður þar sem smáköflótt, glansandi mynstur er ofið inn í textílinn og lausir þræðirnir skapa stórfengleg áhrif á veggnum.
Majesto veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má þrýsta á eða strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi strax í upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun































Wild Forest Mural - Boråstapeter
Northern Stone - Boråstapeter
Woodland Stripe - Boråstapeter
Stravinsky, Stone - Cole & Son
Solliden, Spring Green - Sandberg
Solliden, Midnight Blue - Sandberg
Emrik, Blue - Sandberg
Noah Mural Green - Sandberg (m2 verð)
Erik, Indigo Blue - Sandberg
Ewa, Dusty Pink - Sandberg
Petrouchka, Mink - Cole & Son