fbpx

Macchine Volanti Stone, Rouge & Blue - Cole & Son (2 rúllur)

85.008 kr.

Macchine Volanti Stone, Rouge & Blue – Cole & Son (2 rúllur)

Fornasetti vísar til samstarfs Cole & Son og ítalska hönnunarfyrirtækisins Fornasetti, sem þekkt er fyrir listræna, háklassa hönnun. Í Fornasetti veggfóðurslínunni mætast breskt hágæða handverk og ítalskur húmor og hugmyndaauðgi. Saman skapa fyrirtækin einstaka töfra með endalausri sköpunargáfu og tímalausri fagurfræði.

Macchine Volante mynstrið er fullt af sérstæðum nýjaheims sjarma og vísar til stórkostlegra fljúgandi furðuvéla, þekktum úr ævintýralegum draumórum barna. Á þessu veggfóðri er takmörk ímyndunaraflsins könnuð með fjölda loftbelgja á himinhvolfi fullu af mönnum, vélum og yfirjarðneskum verum.

Þetta veggfóður er selt í tveggja rúllu setti og er uppgefið verð fyrir settið (ekki staka rúllu). Hvor rúlla er 68,5 cm á breidd og 10,05 m löng. Mynsturhæð er 76,2 cm. Vinsamlega hafið samband við vefverslun@serefni.is ef þið þurfið aðstoð við útreikninga.

LEIÐBEININGAR við upphengingu veggfóðurs

85.008 kr.

Í boði sem biðpöntun

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 114/10020 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping