MacAndreas Tartan, Petrol & Rouge – Cole & Son
48.356 kr. rúlluverð
Cole & Son x Vivienne Westwood er nýtt samstarfverkefni í veggfóðurshönnun þar sem goðsagnakennd bresk hönnun, ríkuleg arfleifð og hefðbundið handverk mætast í nútímaumhverfi. Frægar sögulegar tilvísanir blandast saman við framsækna sköpunarsögu Vivienne Westwood og mynda einstaka veggfóðurslínu sem sameinar heim tísku, innanhússhönnunar og lífsstíls.
Fatahönnuðurinn og pönkdrottningin Vivienne Westwood hannaði köflótta MacAndreas fatamynstrið upphaflega í samstarfi við vefarana Lochcarron í Skotlandi til heiðurs eiginmanni sínum og hönnunarfélaga, Andreas Kronthaler. Áhugi Vivenne á enskum og skoskum hefðum varð henni mikill innblástur og viðfangsefni fyrir skopstælingu. Mynstrinu var reyndar bætt á opinbera skrá á viðurkenndum skotaefnum (e. tartan) árið 1994 – sem er mikil viðurkenning.
Hönnuðir Cole & Son umbreyttu fataefninu í veggfóður með eigin litunartækni frá 19. öld sem líkir eftir fínu silki. Eins og skoska fataefnið, sem er ofið þráð fyrir þráð í vefstól, er hver þráður í MacAndreas Tartan vandlega handmálaður með oðrunar-pensli til að skapa mjúka rákótta áferð eins og í uppistöðu og ívafi silkiefna. Litasamsetningarnar vísa til köflóttra mynstra frá Vivienne Westwood tískuhúsinu. Þær eru ýmist í djúpum, jarðbundnum eða skærum, pönkuðum tónum.
Í boði sem biðpöntun



