Lignes Washed White - Arte
Lignes Washed White – Arte
Lignes er sérlega glæsilegt veggfóður með textíláferð. Ljósari og dekkri þræðir eru samofnir til að búa til láréttar rendur. Það gefur tilfinningu fyrir dýpt. Litur: Gráhvítur.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Lignes er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Bastoni Cream - Cole & Son
Gioco Linen - Arte
Rosewood Night - Boråstapeter
Alma Espresso - Arte
Dupion Umber - Arte
Matiz Nougat - Arte
Procuratie Con Vista Soft Grey & Ice Blue - Cole & Son
Floral Charm - Boråstapeter
Lignes Sandstone - Arte
Moa, Indigo Blue - Sandberg
Lin Diva - Arte
Elmcote Dearle Blue - Morris & Co
Waffle Weave Camouflage White - Arte
Toledo, Juniper - Rebel Walls
Cashmere Chiffon - Arte
Secret Garden, Sage on Chalk - Cole & Son