Lignes Paille - Arte
Lignes Paille – Arte
Lignes er sérlega glæsilegt veggfóður með textíláferð. Ljósari og dekkri þræðir eru samofnir til að búa til láréttar rendur. Það gefur tilfinningu fyrir dýpt. Litur: Brúndrappaður.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Lignes er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
41.136 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Opulence, Golden Lines - Rebel Walls
Puro Honey - Arte
Hip Rose - Boråstapeter
Leopard Walk, Orange on Linen - Cole & Son
Ardmore Cameos, Grey - Cole & Son
Geranium - Cole & Son
Gioco Beach - Arte
Skafa - Embo, til niðurrifs á veggfóðri 575mm