Lignes Olive - Arte
Lignes Olive – Arte
Lignes er sérlega glæsilegt veggfóður með textíláferð. Ljósari og dekkri þræðir eru samofnir til að búa til láréttar rendur. Það gefur tilfinningu fyrir dýpt. Litur: Ólívugrænn.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Lignes er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Skafa - Purdy, fyrir pensla og kefli
Canvas Sand - Arte
Sergé Linen - Arte
Tree Canopy - Boråstapeter
Pallaskrúbbur - tré, 22cm
Marsh Washed White - Arte
Lin Normandie Zen - Arte
Gioco Ash - Arte
Lin Galet - Arte
Lin Bain de Boue - Arte
Puro Toffee - Arte
Wilma, Blue - Sandberg
Campo Sandstone - Arte
Amelia Indigo Blue - Sandberg
Dove Gardens - Rebel Walls
Faded Passion Pastel - Sandberg
Triana - Cole & Son
Blossom Mini - Boråstapeter
Alva, Beige - Sandberg
Campo Smokey Blue - Arte