Lignes Ochre - Arte
Lignes Ochre – Arte
Lignes er sérlega glæsilegt veggfóður með textíláferð. Ljósari og dekkri þræðir eru samofnir til að búa til láréttar rendur. Það gefur tilfinningu fyrir dýpt. Litur: Okkurgulur.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Lignes er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
41.136 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Cashmere Cinnamon - Arte
Kefli - Friess, Profingrey 10cm
Aspero Oyster - Arte
Estelle, Light Blue - Sandberg
Puro Sandstone - Arte
Waffle Weave Warm Grey - Arte
Bladverk Garden Green - Sandberg
Petrouchka, Mink - Cole & Son
Twill Pearl - Arte
Nongo Malt - Arte
Terre de Lin Dulce - Arte
Rattan Eclipse - Arte
Pimpernel, Bullrush/Russet - Morris & Co
Tela Ginger Orange - Arte
Blomsterhav - Boråstapeter
Acacia, Taupe & White on Stone - Cole & Son