Jasmine, Ecru/Woad - Morris & Co
Jasmine, Ecru/Woad – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Jasmine hefur flókið þyrnirunnamynstur í bakgrunni og hlykkjótta slóð af blómstrandi jasmínublómum sem eru prentuð ofan á. Þetta veggfóður hannaði William Morris ári 1872. Það er í mildum og tímalausum litum sem gera hvaða rými sem er einkar notalegt.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
35.205 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Hicks' Hexagon - Cole & Son
Elvis - Boråstapeter
C393 loftalisti
Hreinsuð terpentína, alifatnafta
CX112 loftalisti
Honolulu, Green - Rebel Walls
Tamba Pebble - Arte
Ivar - Boråstapeter
Daisy & Oak, Sage/Forest - Morris & Co
Hicks' Hexagon - Cole & Son
Clouds - Boråstapeter
Kvarnholmen - Boråstapeter
Strawberry Thief, Chocolate/Slate - Morris & Co