Iris & Rose, Indigo/Thyme – Morris & Co
41.759 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Iris & Rose er með áberandi skjaldarmynstri þar sem sverðliljur eru miðlægar. Rósir sitja fínlega í bakgrunni ásamt vínviðarlaufi. Punktamynstrið inni í skildinum gefur skemmtilegum sjarma.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun














































R24 rósetta
R14 rósetta
R40 rósetta
R76 rósetta
R17 rósetta
R07 rósetta
R08 rósetta
D210 rósetta
R11 rósetta
P20 rósetta
R22 rósetta
R18 rósetta
R77 rósetta
R12 rósetta